Fotbolti.net
25.06.23 - 17:52
Ívan Guðjón Baldursson

Koulibaly nýr leikmaður Al-Hilal (Staðfest)

Koulibaly nýr leikmaður Al-Hilal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sádí-arabíska félagið Al-Hilal er búið að staðfesta félagsskipti senegalska miðvarðarins Kalidou Koulibaly frá Chelsea.

Kaupverðið er óuppgefið en það er talið nema um 15 til 20 milljónum punda, sem er talsvert minna en Chelsea borgaði fyrir miðvörðinn síðasta sumar.

Koulibaly er 32 ára gamall og spilaði 32 leiki á einu tímabili hjá Chelsea, en þar áður var hann algjör lykilmaður í sterku liði Napoli.

Koulibaly er annar leikmaðurinn sem Al-Hilal kaupir úr ensku úrvalsdeildinni í vikunni, eftir að portúgalski miðjumaðurinn Ruben Neves kom til félagsins á metfé.

Búist er við að Al-Hilal reyni að bæta fleiri stjörnum við sig áður en félagsskiptaglugginn lokar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.