Benítez tekinn við Celta Vigo (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Celta Vigo hefur ráðið Rafa Benítez sem nýjan stjóra félagsins. Frá þessu greinir félagið í dag.
Benítez er 63 ára Spánverji sem hefur stýrt liðum á Englandi, Spáni, Ítalíu og í Kína á sínum ferli. Hann er þekktastur fyrir sín störf hjá Liverpool og þá náði hann frábærum árangri hjá Valencia.

Sá spænski gerir þriggja ára samning við Vigo en hann er þar að taka við af Carlos Carvalhal sem hætti eftir síðasta tímabil.
Celta endaði í 13. sæti, þremur stigum fyrir ofan fallsæti og tryggði sér öruggt sæti með sigri á meisturunum frá Barcelona í lokaumferðinni.
Benítez var síðasta stjóri Everton en var rekinn í janúar 2022 eftir rúmlega sex mánuði í starfi.