Modric framlengdi við Real Madrid (Staðfest)

Luka Modric.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luka Modric.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Luka Modric hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Real Madrid og er nú bundinn félaginu til sumarsins 2024.
Modric er 37 ára og hefur eins og svo margir verið orðaður við Sádi-arabísku deildina.

Modric hefur spilað 488 leiki fyrir Real og unnið þrjá Spánarmeistaratitila og fimm Meistaradeildartitla síðan hann kom frá Tottenham 2012.
Hann vann Ballon d'Or gullknöttinn 2018 þegar Króatía komst í úrslitaleik HM.
Modric fylgir í fótspor Toni Kroos, Dani Ceballos og Nacho Fernandez sem framlengdu samninga sína við félagið í sumar.
Real Madrid keypti Jude Bellingham frá Borussia Dortmund í sumar og enski landsliðsmaðurinn kemur með aukna samkeppni á miðsvæðinu.

Home Sweet Home. #Modric2024
— Luka Modri? (@lukamodric10) June 26, 2023