Fotbolti.net
23.06.23 - 19:49
Ívan Guðjón Baldursson

Kluivert keyptur til Bournemouth (Staðfest)

Kluivert keyptur til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Bournemouth er búið að staðfesta kaup á hollenska kantmanninum Justin Kluivert sem kemur úr herbúðum AS Roma.

Kluivert er 24 ára gamall og er talið að Bournemouth borgi um 10 milljónir punda fyrir hann í heildina.

Kantmaðurinn gerir fimm ára samning Bournemouth eftir að hafa reynt fyrir sér hjá Valencia, Roma, Nice og Leipzig á undanförnum árum.

Kluivert hefur tekist að skora mark í öllum stærstu deildum Evrópu nema ensku úrvalsdeildinni og getur komist í sögubækurnar sem yngsti leikmaðurinn til að skora í stóru deildunum fimm. Hann verður fjórði leikmaður sögunnar til að spila í öllum deildunum og sá þriðji til að skora í þeim öllum eftir Florin Raducioiu og Stevan Jovetic.

Þrátt fyrir þetta yfirvofandi met hefur Kluivert enn ekki tekist að finna rétta taktinn á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta. Kannski eru félagsskipti til Bournemouth breytingin sem Kluivert þarf til að láta ljós sitt skína.

Kluivert keyptur til Bournemouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.