Burnley kaupir O'Shea (Staðfest)

Mynd: Burnley

Mynd: Burnley
Burnley hefur fest kaup á írska landsliðsmanninum Dara O'Shea frá West Brom. Varnarmaðurinn er talinn kosta um sjö milljónir punda.
O'Shea skrifar undir fjögurra ára samning við Burnley sem vann Championship deildina í vetur og verður því í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Hann er fæddur í Dublin og á að baki yfir 100 leiki fyrir WBA. Hann er 24 ára og gekk í raðir félagsins árið 2015 og var fyrstu árin í unglingaliði félagsins.
Hann lék 28 leiki í úrvalsdeildinni með WBA 2020/21 og var í stóru hlutverki hjá WBA á síðasta tímabili. Alls á hann að baki nítján landsleiki.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Burnley kaupri frá öðru félagi í sumar ef frá eru taldir þeir Michael Obafemi og Jordan Beyer sem voru á láni hjá Burnley með kaupmöguleika sem félagið hefur virkjað.
Hjá Burnley hittir O'Shea fyrir íslenska landsliðsmanninn Jóhann Berg Guðmundsson og landa sína Josh Cullen, Michael Obafemi og Luke McNally.

Hey @premierleague, WAZZAP! ???? pic.twitter.com/dpOtWrsgI8
— Burnley FC ???? (@BurnleyOfficial) June 23, 2023