Fotbolti.net
23.06.23 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Zidane Iqbal farinn frá Man Utd (Staðfest)

Zidane Iqbal farinn frá Man Utd (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur staðfest brottför Zidane Iqbal frá félaginu en ekki er tekið fram hvort leikmaðurinn hafi verið seldur eða hvort aðilar hafi einfaldlega komist að samkomulagi um starfslok.

Iqbal er efnilegur sóknartengiliður sem gerði nýjan samning við Man Utd í fyrra en tókst ekki að hrífa Erik ten Hag og þjálfarateymi hans. Honum hefur því verið hleypt burt frá félaginu.

Fjölmiðlar eru sammála um að leikmaðurinn sé á leið til FC Utrecht í Hollandi en óljóst er hvort hollenska félagið þarf að borga eitthvað fyrir.

Hæsta kaupverð sem er nefnt er ein milljón punda en miklar líkur eru á því að Man Utd fái nokkuð háa prósentutölu af hagnaðinum þegar Iqbal verður seldur frá Utrecht. 

Iqbal er 20 ára gamall og á þrjá landsleiki að baki fyrir Írak. Hann er fæddur og uppalinn í Manchester.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.