Fotbolti.net
24.06.23 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Sunderland kaupir miðvörð frá PSV (Staðfest)

Sunderland kaupir miðvörð frá PSV (Staðfest)
Canon

Mynd: Sunderland

Enska B-deildarfélagið Sunderland hefur fest kaup á hollenska miðverðinum Jenson Seelt en hann kemur til félagsins frá PSV Eindhoven.
Seelt er tvítugur og hefur spilað fyrir unglinga- og varalið félagsins í B-deildinni síðustu ár.

Hann á einungis einn leik fyrir aðalliðið en hann kom þá inná í 2-1 sigri á PEC Zwolle í byrjun síðasta árs.

Varnarmaðurinn hefur nú tekið næsta skref ferilsins og er farinn til Englands þar sem hann mun spila með Sunderland í B-deildinni en félagið staðfesti kaupin í gær.

Sunderland komst í undanúrslit umspilsins á síðasta tímabili en tapaði fyrir Luton Town, sem svo eftirminnilega, fór alla leið í umspilinu og mun spila í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.