Guerreiro til Bayern á frjálsri sölu (Staðfest)

Raphael Guerreiro.

Mynd: Bayern

Raphael Guerreiro.

Mynd: Bayern
Portúgalski bakvörðurinn Raphael Guerreiro hefur formlega verið kynntur sem nýr leikmaður hjá þýska stórveldinu Bayern München.
Hann kemur til Bayern á frjálsri sölu frá helstu keppinautunum í Borussia Dortmund.
Þetta er ekki í fyrsta sinn þar sem leikmaður fer frítt frá Dortmund til Bayern en á sínum tíma fóru báðir Mario Götze og Robert Lewandowski á milli á frjálsri sölu.

Bayern og Dortmund háðu harða baráttu um titilinn núna í vor en Bayern stóp uppi sem meistari eftir dramatíska lokaumferð.
Guerreiro, sem hafði spilað með Dortmund í sjö ár, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bayern; samningurinn gildir til 2026.
Hinn 29 ára gamli Guerreiro vann með Thomas Tuchel, núverandi stjóra Bayern, hjá Dortmund á sínum tíma. Hann segist kunna vel við Tuchel og hlakkar til að vinna með honum aftur.
Guerreiro er mjög sóknarsinnaður bakvörður sem var hluti af síðasta landsliðshóp Portúgals. Hann kom inn á sem varamaður í dramatískum sigri gegn Íslandi á dögunum.