Fotbolti.net
26.06.23 - 11:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Frágengið að Havertz fer til Arsenal

Frágengið að Havertz fer til Arsenal
Canon

Mynd: Getty Images

Þýski blaðamaðurinn Florian Plettenberg sem vinnur hjá Sky í Þýskalandi greinir frá því rétt í þessu að það sé frágengið að Kai Havertz sé á leið til Arsenal frá Chelsea.

Hann segir að Havertz skrifi undir fimm ára samning og kaupverðið sé 75 milljónir evra þar sem bónusgreiðslur séu með inni í dæminu.
Havertz fer í læknisskoðun seinna í vikunni og í kjölfarið verður hægt að setja (Staðfest) fyrir aftan skiptin.

Plettenberg segir að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sé ein af aðalástæðunum fyrir því að Havertz vilji fara til Arsenal.

Havertz er 24 ára þýskur sóknarmaður sem þekktastur er fyrir að hafa skorað sigurmarkið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2021. Þýski landsliðsmaðurinn gekk í raðir Chelsea árið 2020 frá Bayer Leverkusen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.