Ruben Neves til Al-Hilal á metfé (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sádí-arabíska félagið Al-Hilal er búið að ganga frá kaupum á portúgalska miðjumanninum Ruben Neves fyrir um 47 milljónir punda, eða 55 milljónir evra.
Þetta er metfé fyrir bæði Wolves og Al-Hilal sem hafa aldrei áður í sögunni sýslað með svona háar upphæðir í félagsskiptum.
Neves er fenginn til að vera lykilmaður í uppbyggingunni sem á sér stað innan herbúða Al-Hilal, enda er Neves aðeins 26 ára gamall og í fullu fjöri bæði í enska boltanum og með ógnarsterku landsliði Portúgals.
Neves var algjör lykilmaður á tíma sínum hjá Úlfunum og skoraði 30 mörk í 253 leikjum, spilandi sem djúpur miðjumaður. Hann er einnig lykilmaður í portúgalska landsliðinu og á 41 leik að baki þar.
Hjá Al-Hilal má finna leikmenn á borð við Matheus Pereira, Gustavo Cuellar, Moussa Marega og Andre Carrillo en félagið hefur verið orðað við stórstjörnurnar Neymar og Bernardo Silva að undanförnu.
Glorious memories which will last a lifetime.
— Wolves (@Wolves) June 23, 2023
???????? pic.twitter.com/28eFTL2SbI



