Rúnar Már fer ekki heim - Skrifaði undir þriggja ára samning í Rúmeníu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við rúmenska félagið Voluntari en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag.
Miðjumaðurinn knái kom til Voluntari í desember eftir að hafa spilað í tvö ár hjá Cluj.
Hann skoraði fimm mörk og lagði upp eitt síðari hluta tímabilsins hjá Voluntari en hann gerði samning út tímabilið.
Það var orðrómur um það að Rúnar Már væri á heimleið en hann var sagður í viðræðum við bæði ÍA og Val.
Ekkert verður af heimkomu hans en í dag framlengdi hann samning sinn við Voluntari til næstu þriggja ára.
Rúnar Már hefur einnig spilað fyrir Astana, St. Gallen, Grasshoppers, Sundsvall og PEC Zwolle á atvinnumannaferli sínum.
Hann hefur spilað 32 A-landsleiki og skorað 2 mörk.