Leipzig borgar 25 milljónir fyrir Baumgartner (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
RB Leipzig er búið að festa kaup á miðjumanninum sóknarsinnaða Christoph Baumgartner fyrir um 25 milljónir evra.
Baumgartner er 23 ára gamall Austurríkismaður með 10 mörk í 29 landsleikjum, en hann hefur verið á mála hjá Hoffenheim síðustu sex ár.
Hann hefur verið lykilmaður í liði Hoffenheim síðustu þrjú ár og á í heildina 30 mörk í 138 leikjum fyrir félagið. Hann skoraði sjö og gaf sjö stoðsendingar á nýliðnu tímabili í þýsku deildinni.
Baumgartner gerir samning við Leipzig til 2028 og á að hjálpa til við að fylla í það risastóra skarð sem Christopher Nkunku skilur eftir í sóknarleik liðsins.
Leipzig endaði í þriðja sæti þýsku deildarinnar og leikur því í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í haust. Félagið þarf að styrkja hópinn enn frekar fyrir komandi átök og vantar varnarsinnaðan miðjumann eftir að hafa misst Konrad Laimer til FC Bayern.



