Fotbolti.net
24.06.23 - 12:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Smylie einnig á förum frá Keflavík

Smylie einnig á förum frá Keflavík
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Það var staðfest í gær að Marley Blair hafi yfirgefið Keflavík en hann hafði ekki staðið undir væntingum.

Tímabilið hefur verið erfitt hjá keflavík en Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Siggi Raggi, staðfesti í samtali við Fótbolta.net eftir leik liðsins gegn Fylki í gær að Jordan Smylie væri einnig á förum frá félaginu.

„Þakka Marley Blair fyrir hans framlag. Forsenda fyrir því að geta styrkt hópinn í glugganum var að reyna losa menn og við höfum rætt við tvo leikmenn um það. Þeir hafa ekki staðið þær væntingar sem við berum til þeirra," sagði Siggi Raggi.

„Við hefðum viljað fá meira út úr þeim og þeir eru ekki mikið inn í myndinni upp á framhaldið og þá er betra fyrir báða aðila að það skilji leiðir og við reynum að fá nýja leikmenn inn sem geta styrkt okkur. Blair er farinn frá okkur og Jordan Smylie er á leiðinni frá okkur."

Þá eru einnig margir sterkir leikmenn frá vegna meiðsla en Siggi Raggi er staðráðinn í að styrkja hópinn þegar félagsskiptaglugginn opnar um miðjan júlí.

Sjá einnig
Marley Blair stóð ekki undir væntingum og yfirgefur Keflavík (Staðfest)

Siggi Raggi: Fannst við fá haug af færum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.