Marcelino tekinn við Marseille (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Marseille er búið að ráða Marcelino sem nýjan þjálfara félagsins á tveggja ára samningi.
Hann tekur við af Igor Tudor sem stýrði Marseille til þriðja sætis í frönsku deildinni á nýliðinni leiktíð og vildi leita sér að nýrri áskorun.
Marcelino er 57 ára gamall og hefur á síðustu tólf árum stýrt Sevilla, Villarreal, Valencia og Athletic Bilbao með pásum inn á milli. Hann tók sér frí frá fótbolta á síðustu leiktíð en er núna tilbúinn til að hefja nýtt ævintýri í nýju landi.
Marcelino hefur hingað til aðeins þjálfað félög á Spáni og er því að reyna fyrir sér í fyrsta skipti utan landsteinanna. Á ferli sínum sem atvinnumaður í knattspyrnu var Marcelino einnig mjög heimakær og færði sig aldrei burt frá Spáni.
Miðjumaðurinn Geoffrey Kondogbia verður líklega fyrsti leikmaðurinn sem Marcelino fær til að ganga til liðs við sig hjá Marseille.
Marseille er í viðræðum við Atletico Madrid um kaupverð, sem er talið nema um 7 milljónum evra. Kondogbia er 30 ára gamall og með eitt ár eftir af samningi sínum við Atletico, en hann býr yfir mikilli reynslu.
Marcelino þjálfaði Kondogbia hjá Valencia frá 2017 til 2019 og vill þessi fyrrum landsliðsmaður Frakklands ólmur spila aftur undir hans stjórn.
#OM announces the signing of Marcelino to lead the team next season ???????? pic.twitter.com/xvCu5v0Sbt
— Olympique de Marseille ???????? ???????? (@OM_English) June 23, 2023



