Fotbolti.net
26.06.23 - 09:45
Elvar Geir Magnússon

Robbie Keane orðinn stjóri Maccabi Tel Aviv (Staðfest)

Robbie Keane.

Robbie Keane.

Canon

Mynd: Getty Images

Maccabi Tel Aviv, sigursælasta félagslið Ísrael, hefur staðfest Robbie Keane sem nýjan stjóra félagsins en hann gerir tveggja ára samning. Liðið hafnaði í þriðja sæti á liðnu tímabili.

Keane hefur starfað sem aðstoðarstjóri undanfarin ár, hjá Middlesbrough og írska landsliðinu og þá var hann í þjálfarateymi Sam Allardyce hjá Leeds á lokakafla nýliðins tímabils.
Keane átti farsælan leikmannaferil og skoraði fjölda marka fyrir Tottenham, LA Galaxy og írska landsliðið. Einnig lék hann fyrir Leeds, Liverpool, Coventry, West Ham og Aston Villa.

„Ég er ánægður með að takast á við nýja áskorun hjá Maccabi. Ég hlakka til að búa liðið undir komandi tímabil," segir Keane sem er 42 ára gamall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.