Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 01. febrúar 2023 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Everton getur ennþá fengið Ayew inn
Mynd: Getty Images
Daily Mail greinir frá því að Andre Ayew sé væntanlegur til Englands á næsta sólarhring. Ayew rifti samningi sínum við Al Sadd í Katar og má semja við félag annars staðar jafnvel þó að nú sé búið að loka félagsskiptaglugganum.

Everton vill fá hann í sínar raðir en það er alls ekkert víst að Ayew semji við félagið. Önnur ensk félög hafa áhuga en þau hafa ekki verið nafngreind. Mail segir að það séu helmingsslíkur á því að Ayew endi í Everton.

Farhad Moshiri, eigandi Everton, lofaði að fá inn framherja í glugganum en það kom enginn.

Ayew fór til Al Sadd fyrir einu og hálfu ári síðan en kláraði ekki tveggja ára samninginn sem hann skrifaði undir. Hann hefði svo þurft að spila fimm leiki í viðbót til að bæta heilu ári í viðbót við samning sinn í Katar.

Hann er 33 ár Ganverji sem lék með Swansea tímabilin 2015-16 og svo aftur 2018-21. Í millitíðinni lék hann með West Ham tímabilin 2016-18.
Athugasemdir
banner
banner