Fotbolti.net
21.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Segir félagið þegar hafa tekið út þunga refsingu

Þjóðverjinn Tonda Eckert.

Þjóðverjinn Tonda Eckert.

Canon

Mynd: EPA

Það eru rúmir fjórir mánuðir síðan njósnaskandallinn í kringum Southampton var eitt helsta fréttamálið. Bið Tonda Eckert, stjóra Southampton, eftir því að fá dóm er næstum á enda.

Málið verður tekið fyrir í þessari viku eftir að Eckert var ákærður. Eftir að upp komst um njósnir Southampton á æfingum þriggja keppinauta sinna var liðinu sparkað út úr umspili Championship-deildarinnar og missti því af möguleika á úrvalsdeildarsæti og öllu sem því fylgir.

Að auki voru fjögur stig dregin af Southampton fyrir þetta tímabil og nú gæti Eckert verið dæmdur í bann.
Búið að refsa félaginu mikið
„Ég væri að ljúga ef ég segði að þetta hefði verið þægilegt sumar. Auðvitað ber ég mikla umhyggju fyrir atvinnu minni, um þetta félag og ekkert býr þig undir þetta," segir hinn 33 ára gamli Eckert.

Southampton sendi njósnara til að fylgjast með æfingum andstæðinga og varð mikið fjölmiðlafár þegar hann var nappaður að fela sig bak við tré á æfingasvæði Middlesbrough.

Southampton hefur farið nokkuð vel af stað á nýju tímabili í Championship-deildinni, liðið væri í fjórða sæti en ekki því þrettánda ef ekki væri fyrir stigafrádráttinn.

„Við höfum mikið talað um það í sumar hvernig við förum í það ferli að takast á við stöðuna, leyfa öllum að spyrja að því sem þeir vilja vita og opna sig um sínar skoðanir og tilfinningar. Við viljum líka loka hurðinni og horfa fram veginn. Það er staðreynd að þetta er nýtt tímabil og við sem félag erum með mikinn metnað."

Það er þó hægara sagt en gert meðan Eckert bíður eftir niðurstöðu í sínu máli frá aganefnd enska fótboltasambandsins.

„Ég hef fengið tækifæri til að fá mér sæti og fara með enska sambandinu í gegnum allt sem hefur átt sér stað. Nú er það bara þeirra að taka ákvörðun. Við töluðum saman í næstum fjóra klukkutíma," segir Eckert.

„Þetta hefur þegar verið þung refsing, það eru engin fordæmi fyrir svona. Ég hef beðist afsökunar og beðið opinberlega um fyrirgefningu. Það er búið að refsa félaginu mikið, það er þungt að byrja nýtt tímabil með fjögur stig í mínus."

Veit ekki hvað við fáum frá enska sambandinu
Eckert fór í viðtal við breska ríkisútvarpið sem ræddi einnig við Phil Parsons, framkvæmdastjóra Southampton.

„Við vitum ekki hver niðurstaða enska sambandsins verður. Það gæti verið langt bann, það gæti verið stutt bann, það gæti verið skilorðsbundin refsing. Það sem ég vona er að það sé tekið tillit til þess hvað við höfum þegar orðið fyrir. Við höfum eytt háum fjárhæðum í lögfæðiaðstoð og misstum af möguleika á úrvalsdeildinni. Ég tel að við höfum fengið eina þyngstu refsingu sem félagslið hefur fengið," segir Parsons.
Frá umfjöllun um njósnamálið.

Frá umfjöllun um njósnamálið.

Canon

Mynd: Daily Mail

Segir félagið þegar hafa tekið út þunga refsingu
Canon

Mynd: EPA

Segir félagið þegar hafa tekið út þunga refsingu
Canon

Mynd: EPA

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea10+923
2Middlesbrough10+621
3West Ham10+1719
4Birmingham10+617
5QPR10+617
6West Brom10+217
7Southampton10+1116
8Stoke City10+116
9Blackburn10+215
10Wolves9+214
11Millwall10014
12Bristol City10-214
13Charlton Athletic10-314
14Bolton10-313
15Sheffield Utd10012
16Portsmouth9-111
17Wrexham10-411
18Lincoln City10-1011
19Cardiff City10+110
20Norwich10-39
21Burnley10-48
22Watford10-118
23Derby County10-106
24Preston NE10-124
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.