Fotbolti.net
21.09.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sesko dregur sig úr landsliðshópnum

Sesko dregur sig úr landsliðshópnum
Canon

Mynd: EPA

Benjamin Sesko, framherji Man Utd, hefur dregið sig úr slóvenska landsliðshópnum vegna þrálátra meiðsla.

Sesko var ekkert með á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla á sköflung og var aftur fjarverandi gegn Fulham í gær en hann hafði spilað alla leiki á tímabilinu fram að því.
Man Utd greinir frá því að þessi 23 ára gamli framherji þurfi að fara í frekari rannsóknir í vikunni og muni líklega þurfa að taka sér hvíld til að koma í veg fyrir að þetta verði langtímavandamál.

Sesko gekk til liðs við Man Utd frá Leipzig síðasta sumar. Hann skoraði 12 mörk í 32 leikjum á síðustu leiktíð og hefur skorað tvö mörk í sex leikjum á þessari leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.