21.09.26 - 17:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir að Amin Cosic gæti fengið kallið frá Bosníu í næsta glugga

Mynd: Viking Stavanger

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Aðsend

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Viking Stavanger
Fyrrum landsliðsmaðurinn Emir Spahic er yfirmaður fótboltamála hjá fótboltasambandi Bosníu og Hersegóvínu. Spahic sem lék m.a. með Sevilla og Leverkusen á sínum ferli hefur rætt við íslenska U21 landsliðsmanninn Amin Cosic.
Eins og Fótbolti.net greindi frá fyrr í þessum mánuði er líklega mjög erfitt val framundan á ferli Amins sem getur bæði spilað með íslenska og bosníska landsliðinu.
Spahic hefur tjáð sig um Amin og er hann að fylgjast með honum. Amin var seldur frá KR eftir mjög öfluga byrjun á tímabilinu og keyptu norsku meistararnir í Viking hann. Þá kom hann inn á radarinn hjá bosníska sambandinu en hann hafði þá spilað með íslenska U21 landsliðinu í vor.

TENGT EFNI
Erfið og stór ákvörðun framundan hjá Amin Cosic - „Tengi mjög mikið við báða kosti"
Almir, faðir Amins, var nálægt því á sínum tíma að komast í Meistaradeildina þegar hann spilaði með Zeljeznicar í Bosníu-Hersegóvínu en enska liðið Newcastle kom í veg fyrir það. Almir varð bikarmeistari árið 2003.
Blaðamaður Sportske í Bosníu segir frá því í dag að Amin gæti verið valinn í A-landsliðshópinn hjá Sergej Barbarez í nóvember, og ef ekki þá, þá mögulega í undankeppni EM sem hefst á næsta ári. Félagaskipti hans frá KR í Viking sýna hversu miklar framfarir hann hefur tekið.
Eins og aðdáendur íslenska fótboltans vita þá býr Amin yfir miklum hraða, er mjög teknískur, hreyfanlegur og góður skotmaður. Hann er líka frábær í því að taka menn á, er réttfættur vinstri kantmaður og gæti fengið tækifæri í Meistaradeildinni í vetur.
Bosníski miðillinn segir að Amin þurfi að spila reglulega með Viking til að gera tilkall á landsliðssæti. Gengið er svo langt að segja að hann sé framtíð landsliðsins og að hann sé með hæfileika til að spila á enn hærra sviði fljótlega.
Arnar Gunnlaugsson um Amin
„Það kom alveg til greina að velja hann. En það er spurning hvenær á að negla menn og á hvaða forsendum. Ég átti samræður við Amin og U21 landsliðsteymið. Það gefur honum sterkari stöðu að vera í U21, það gefur honum tækifæri til að hugsa því að á endanum tekur hann ákvörðun hvað hann velur. Hann getur vegið og metið kosti og galla alla þætti leiksins. Það síðasta sem þú átt að gera í þessari stöðu er að taka fyrsta boði á ballinu, þú þarft að sjá fyrir þér næstu 15 ár, hvar er mér best borgið?"
„Íslandi vantar fleiri sem eru góðir að taka menn á, Amin er geggjaður í því og ég er á því að þakið á honum sé mjög hátt."
„Með því að hann tekur slaginn með U21 er hann ekki að taka slaginn með Bosníu, og svo er þetta endurmetið í næsta glugga. Mér finnst mikilvægt að þetta sé gert á réttum forsendum; að hann komi inn í A-landslið af því hann á það skilið, ekki af því að hann er með eitthvað vegabréf," segir Arnar m.a. um Amin í viðtali í ChessAfterDark í síðustu viku.