Fotbolti.net
21.09.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carragher: Wirtz á ekki að vera í liðinu gegn Man City

Carragher: Wirtz á ekki að vera í liðinu gegn Man City
Canon

Mynd: EPA

Florian Wirtz hefur ekki staðist undir væntingum eftir að hann gekk til liðs við Liverpool frá Leverkusen í fyrrasumar fyrir 116 milljónir punda.

Hann kom að 17 mörkum í 49 leikjum á síðustu leiktíð og hefur lagt upp eitt mark í sex leikjum á þessari leiktíð. Jamie Carragher, fyrrum leikmaður LIverpool, var ekki sáttur með frammistöðu hans í 1-0 sigrinum á Bournemouth um helgina.
Hann vill ekki sjá Wirtz í byrjunarliðinu gegn Man City í næsta leik eftir landsleikjahlé þann 11. október.

„Wirtz væri ekki í Liverpool liðinu mínu. Man City á heimavelli, hann getur ekki verið í liðinu fyrir mér," sagði Carragher.

„Það sem ég kann að meta við Iraola er að hann hefur hugrekki til að taka stórar ákvarðanir. Ryan Gravenberch skrifaði nýlega undir stóran fimm ára samning af því þeir töldu að hann og Szoboszlai væru framtíðin á miðjunni. Hann er ekki að spila."

„Fyrr eða síðar þarf hann að taka ákvörðun varðandi Florian Wirtz og ég vona að það verði fyrr. Ekki af því ég fíla ekki Wirtz, ég er mjög spenntur fyrir því að hann standi sig. Ég vil bara að Liverpool vinni," sagði Carragher.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.