Fotbolti.net
21.09.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

„Annars verður Man Utd í leit að nýjum bráðabirgðastjóra fyrir jól“

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

„Stuðningsmenn United hljóta að vera að þjást af alvarlegu tilfelli af déjà vu," segir íþróttafréttamaðurinn James Whaling.

„Samsvörunin milli Michael Carrick og Ole Gunnar Solskjær er augljós. Fyrrverandi leikmaður kemur inn tímabundið og heillar, fær fasta vinnu og lendir síðan í versnandi árangri."

Manchester United náði að bjarga stigi 1-1 gegn Fulham í gær en fer inn í landsleikjahlé í 12. sæti og hefur bara náð í fimm stig úr fyrstu fimm umferðunum. Fyrsti leikur eftir landsleikjagluggann verður gegn Tottenham, sem hefur einnig byrjað tímabilið illa.

Whaling segir ljóst að sæti Carrick verður funheitt ef illa fer þar.
Neville: Carrick verður að hætta að verja leikmennina
TENGT EFNI

Neville: Carrick verður að hætta að verja leikmennina

„Þeir voru heppnir að fá stig gegn Fulham í gær og Sir Jim Ratcliffe hjálpar ekki til með fáránlegu tali sínu í fjölmiðlum. Þeir eru í 12. sæti, hafa aðeins að fara í annað tímabil í brekkur. Carrick þarf að ná í úrslit og það strax eftir landsleikjahléið, annars verður Manchester United í leit að nýjum bráðabirgðastjóra fyrir jól."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.