Fotbolti.net
21.09.26 - 16:04
Elvar Geir Magnússon

Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafund

Mourinho breytist aldrei, sem betur fer.

Mourinho breytist aldrei, sem betur fer.

Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, var mjög ósáttur við dómgæsluna í 2-1 tapleiknum gegn grönnunum í Atletico Madrid. Sá portúgalski mætti á fréttamannafund með útprentuð blöð með myndum af tveimur brotum úr fyrri hálfleik þar sem hann vildi rauð spjöld á andstæðingana.

„Við getum sleppt þessum fréttamannafundi því saga leiksins er hér," sagði Mourinho og sýndi fréttamönnum myndirnar.

„Bæði þessi tilfelli áttu klárlega að vera rautt spjald. Miðað við hversu erfitt það var fyrir okkur að spila 11 gegn 10 síðar í leiknum getum við ímyndað okkur hvernig það hefði verið að spila 50 mínútur 11 gegn 9."

Staðan var markalaus þegar Dean Huijsen, varnarmaður Real Madrid, fékk rautt spjald á 52. mínútu. Atletico notfærði sér svo liðsmuninn og vann 2-1 sigur.
Spánn: Atlético vann Madrídarslaginn - Huijsen sá rautt
TENGT EFNI

Spánn: Atlético vann Madrídarslaginn - Huijsen sá rautt


Svipmyndir úr leiknum:

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid9+1122
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo9+111
9Villarreal909
10Celta8+28
11Athletic6+18
12Espanyol9-18
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante8-47
18Elche9-67
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.