Slúðurpakkinn á Englandi er í styttri kantinum í dag enda ekki vitað hvenær félagaskiptaglugginn opnar vegna kórónuveirunnar.
Manchester United er að undirbúa tilboð í Matthijs de Ligt (20) varnarmann Juventus en Paul Pogba (27) gæti farið í hina áttina í staðinn. (Star)
Manchester United gæti neyðst til að greiða Alexis Sanchez (31) 1,1 milljón punda í bónusgreiðslu þegar hann kemur aftur til baka úr láni frá Inter. (Sun)
Everton er að undirbúa tilboð í Gareth Bale (30) hjá Real Madrid og Aaron Ramsey (29) hjá Juventus. (90min.com)
Everton notar myndbandsforritið Zoom til að vera í sambandi við leikmenn og starfsmenn sína. Morgan Schneiderlin (30) hefur notað Zoom til að ræða við lækni sem mun skera hann upp á næstu mánuðum. (Guardian)
Arsenal hefur áhuga á Hamed Traore (20) sem er í láni hjá Sassuolo frá Empoli sem og bróður hans Amad Traore (17) en hann er kantamður Atalanta. (90min.com)
Athugasemdir