13.09.26 - 18:10
Víðir Sigurðsson
KR-ingar slógu markametið

Galdur Guðmundsson skoraði 77. mark KR í deildinni í ár og þar með féll metið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar slógu í dag markamet efstu deildar karla þegar þeir skelltu Skagamönnum 5-1 í 23. umferð Bestu deildarinnar á Meistaravöllum.
KR hefur skorað 79 mörk í fyrstu 23 leikjum sínum í deildinni og þó enn sé fjórum umferðum ólokið er markametið þegar fallið.

Fyrra metið áttu Víkingar sem skoruðu 76 mörk í 27 leikjum þegar þeir urðu Íslandsmeistarar árið 2023.
Það var því þriðja mark KR sem Galdur Guðmundsson skoraði á 21. mínútu, þegar hann kom KR í 3-0, sem ýtti Víkingunum af stallinum.
KR og Víkingur eru einu liðin sem hafa skorað 70 mörk eða meira á einu tímabili í deildinni en afar líklegt er að Víkingar endurtaki leikinn núna í haust. Þeir eru komnir með 67 mörk og eiga enn fimm leiki eftir.