Fotbolti.net
13.09.26 - 17:32
Sigurjón Árni Torfason

Dagur Orri ekki viss: Kemur sennilega í ljós í dag

Auglýsing
Dagur Orri, leikmaður Vals

Dagur Orri, leikmaður Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tók á móti Þór í fyrstu umferð neðri hlutans í Bestu deildinni. Þórsarar byrjuðu leikinn mun betur, en Valsmenn bitu frá sér og voru mun betri aðilinn í síðari hálfleik. Fótbolti.net var að sjálfsögðu mætt á Hlíðarenda og spjallaði við Dag Orra eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 Þór
„Bara frábært að koma svona sterkt tilbaka og vinna þetta svona almennilega. Bara sterk úrslit, eftir lélegan fyrri hálfleik, að koma svona sterkir til baka. Það er mjög gott."

Valur voru miklu betri aðilinn í seinni hálfleik og Þórsarar sáu ekki til sólar.

„Við fórum bara yfir okkar mál og breyttum um leikkerfi sem hjálpaði okkur. Leikkerfið sem við byrjuðum með var ekki að ganga nógu vel þannig að við breyttum um leikkerfi og bara stilltum hausinn rétt. Við náðum að koma okkur vel inn í leikinn og enduðum á að vinna svona sterkt.´´

Dagur Orri hefur verið sterklega orðaður við Slóvenska félagið MŠK Žilina og gæti því vel verið að þetta hafi verið hans síðasti leikur fyrir Val.

„Ég veit það ekki. Það er eitthvað í gangi, það þarf bara að koma í ljós. Ég veit það ekki, kemur sennilega í ljós í dag eða eitthvað en ég bara get ekki svarað því miður.´´

Eru miklar líkur á að þú farir?

„Eins og ég segi, ég veit það ekki. Það er bara að sjá til hvað gerist. Ég er ekki viss.´´
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.