13.09.26 - 17:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haaland sló met Rooney og Aguero


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Man City vann Man Utd í Manchesterborgarslagnum á Old Trafford í dag. Erling Haaland skoraði eina mark leiksins en Man City var manni færri frá 23. mínútu þegar Phil Foden var rekinn af velli.
Haaland skoraði markið eftir fyrirgjöf og virtist rangstæður við fyrstu sín. VAR staðfesti hins vegar að Patrick Dorgu hafi gert hann réttstæðan þegar hann teygði sig á eftir fyrirgjöfinni.
Haaland skoraði markið eftir fyrirgjöf og virtist rangstæður við fyrstu sín. VAR staðfesti hins vegar að Patrick Dorgu hafi gert hann réttstæðan þegar hann teygði sig á eftir fyrirgjöfinni.
Þetta var níunda mark Haaland gegn Man Utd í átta leikjum.
Enginn hefur skorað jafn mörg mörk í leikjum þessara liða en Wayne Rooney skoraði átta mörk í 21 leik og Sergio Aguero skoraði átta mörk í 13 leikjum.
Enginn hefur skorað jafn mörg mörk í leikjum þessara liða en Wayne Rooney skoraði átta mörk í 21 leik og Sergio Aguero skoraði átta mörk í 13 leikjum.
9 - Erling Haaland is now the top scorer in Premier League games between Manchester City and Manchester United:
— OptaJoe (@OptaJoe) September 13, 2026
9 - Haaland (8 apps)
8 - Agüero (13 apps)
8 - Rooney (21 apps)
Domination. pic.twitter.com/EBiifV12st
