13.09.26 - 18:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: Þróttur fer á Laugardalsvöll

Sigurður Egill Lárusson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Egill Lárusson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur R. 2 - 1 Njarðvík (3-1 samanlagt)
1-0 Baldur Hannes Stefánsson ('28 )
2-0 Sigurður Egill Lárusson ('53 , víti)
2-1 Valdimar Jóhannsson ('68 )
Lestu um leikinn

Þróttur fékk Njarðvík í heimsókn í seinni leik liðanna í undanúrslitunum í umspili um sæti í Bestu deildinni í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Þróttar.
Þróttur komst yfir þegar Baldur Hannes Stefánsson skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Kára Kristjánssyni. Þróttur fékk síðan vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik og Sigurður Egill Lárusson skoraði úr henni og kom Þrótti í þægilega stöðu.
Njarðvík minnkaði muninn þegar Valdimar Jóhannsson skoraði eftir mikinn darraðadans inn á teig Þróttar.
Njarðvík fékk gullið tækifæri til að jafna metin þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Hrafn Guðmundsson átti skot í varnarmann, boltinn barst síðan til Freysteins Inga Guðnasonar sem fékk tvær tilraunir, fyrst var varið frá honum og síðan átti hann skot í varnarmann.
Njarðvík var hársbreidd frá því að skora undir lokin. Oumar Diouck átti skot í stöngina og boltinn barst til Valdimars en hann skaut framhjá.
Nær komust Njarðvíkingar ekki og Þróttur fór með sigur af hólmi og tryggði sér sæti í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli þann 19. september.