Fotbolti.net
13.09.26 - 17:52
Sigurjón Árni Torfason

Siggi Höskulds: Það verður spenna á Akureyri alla vikuna

Auglýsing
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs.

Siggi Höskulds, þjálfari Þórs.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þór heimsótti Val á Hlíðarenda í dag í fyrstu umferð neðri hlutans í Bestu deild karla. Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, en Valsmenn tóku síðan yfir leikinn í seinni hálfleik og lauk honum með 4-1 sigri Vals.
Fótbolti.net var mætt á svæðið og heyrði í Sigga eftir leik.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 Þór
„Það er svekkjandi að ná ekki að skilja meira eftir í þessum góða kafla sem við áttum í byrjun leiks. Þá gekk leikurinn bara fullkomlega upp hjá okkur. Við vorum orkumiklir og náðum að setja mikinn kraft í leikinn, þannig að það er svekkjandi að hafa ekki fengið meira út úr þessum kafla.´´

„Eftir markið missum við aðeins tökin á leiknum og vorum svolítið skrefinu á eftir. Við hleyptum þeim í það sem þeir eru góðir í. Við náðum svo aðeins aftur tökum á leiknum undir lok fyrri hálfleiks, en það er samt svekkjandi að hafa ekki skilið meira eftir, því mér fannst við eiga inni svona 65–70 prósent af fyrri hálfleiknum.´´

„Svo komum við með mjög skrýtið orkustig inn í seinni hálfleikinn og vorum svolítið kærulausir. Við fórum að gera akkúrat það sem við ætluðum okkur ekki að gera og náðum okkur aldrei almennilega á strik eftir það. Þeir refsuðu okkur og skoruðu ódýr mörk.´´

„Viðbrögðin eftir leikinn eru því þau að góðu kaflarnir okkar voru mjög góðir. Við þurfum hins vegar að klára sóknirnar okkar betur, koma okkur í skot og vera aðeins klókari á síðustu metrunum. Slæmi kaflinn var of langur, en Valsliðið er líka allt öðruvísi lið en þau lið sem við eigum eftir að mæta.´´

„Þannig að við tökum það góða úr þessum leik og förum með það inn í næsta leik.“

Þór á næst fyrir höndum stórleik í fallbaráttunni þegar liðið mætir nágrönnum sínum í KA í alvöru Akureyrarslag.

„Þetta leggst bara mjög vel í okkur. Þetta verður stór leikur og það verður mikil spenna á Akureyri alla vikuna. Ég held að góðu kaflarnir okkar í dag og í síðasta leik komi með okkur inn í það stríð sem verður þar.´´


„Þetta verður aftur allt öðruvísi leikur og allt öðruvísi lið sem við mætum. Ég er því bara mjög spenntur fyrir leiknum, eins og við allir. Þetta er það sem ég held að alla hafi dreymt um þegar Þórsliðið kom upp – að það yrði leikur gegn KA sem myndi skipta einhverju alvörumáli. Það er svo sannarlega þannig núna á mótinu.“  Sagði Siggi við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.