Fotbolti.net
13.09.26 - 17:38
Sigurjón Árni Torfason

Chris Brazell: Hann hjálpaði okkur að ná í sex stig

Auglýsing
Chris Brazell, þjálfari Vals.

Chris Brazell, þjálfari Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tók á móti Þór í fyrstu umferð neðri hlutans eftir skiptingu.
Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, en Valsmenn bitu heldur betur frá sér, sérstaklega í seinni hálfleik. Leiknum lauk með 4-1 sigri heimamanna.
Fótbolti.net var mætt á svæðið og heyrði í Chris eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 5 - 1 ÍA

„Ég er mjög ánægður með frammistöðuna og fannst þetta heilt yfir vera alveg frábær frammistaða megnið af leiknum. Þetta var frekar erfið byrjun, en aftur á móti bjóst ég við því miðað við hvernig þeir voru að spila. Við bárum mikla virðingu fyrir þeim.´´

„Við spiluðum kannski aðeins of mikið upp í hendurnar á þeim. En jafnvel í fyrri hálfleiknum sköpuðum við okkur góð færi. Við gáfum þeim kannski aðeins of mikið af boltanum og aðeins of mörg tækifæri að okkar mati. En ég held að hlutar fyrri hálfleiksins, og svo allur seinni hálfleikurinn, hafi verið frábær frammistaða hjá strákunum. Þeir eiga allt hrósið skilið.´´

„Á þessari næstu viku og næsta mánuði held ég að það sé alveg ljóst að við erum að keyra á frekar fáliðuðum hópi. Jafnvel í dag sá maður leikmenn inni á vellinum sem eru ekki hundrað prósent. En ég held að þetta sýni karakter hjá strákunum. Sumir hafa dregið hann í efa, en þeir hafa aftur látið verkin tala inni á vellinum, eins og þeir hafa gert þessar síðustu vikur.´´

„Eins og ég segi, þá er þetta bara frábært.“


Um framtíð Dags Orra

Dagur Orri hefur verið orðaður við brottför frá Val og hefur verið talað um að hann yfirgefi félagið í dag.

„Eins og ég sagði í hinu viðtalinu, þá veit ég það ekki. Þetta er ekki ákvörðun sem ég tek og ég kem ekki að ákvörðunum um leikmennina eða framtíð þeirra.´´

„Auðvitað veit ég af þessum vangaveltum og ég veit að það hefur verið fólk að fylgjast með honum hér í dag, þannig að það verða örugglega áfram einhverjar vangaveltur.´´

„Ég er bara mjög ánægður með frammistöðu Dags í dag í heildina. Ég held að hann hafi átt sínar tvær bestu frammistöður í Valstreyjunni í síðustu tveimur leikjum. Ef þetta voru síðustu tveir leikirnir hans, þá er það bara frábært og hann hjálpaði okkur að ná í sex stig. En ef svo er ekki, þá erum við auðvitað tilbúin að vinna með honum út tímabilið og hjálpa honum að halda áfram að bæta sig.´´


„Við erum líka með marga aðra unga leikmenn sem stóðu sig mjög vel í dag. Til dæmis get ég sagt að Kristófer Dags er akkúrat núna einn af bestu miðjumönnum deildarinnar í því sem hann gerir. Lúkas, þó hann sé aðeins eldri, er stöðugt að skila mjög þroskuðum frammistöðum.´´

Jafnvel undir lok leiksins sá maður að framtíðin er björt, þar sem nokkrir fleiri ungir leikmenn komu inn á.´´

„Þannig að hvað sem gerist, þá munum við bara sjá til þess að við séum tilbúin í síðustu leikina, berjumst og gefum allt okkar, óháð því hverjir eru í liðinu.“ sagði Chris við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.