Fotbolti.net
01.04.21 - 19:01
Victor Pálsson

Guardiola: Ekki hægt að taka við af Aguero

Guardiola: Ekki hægt að taka við af Aguero
Canon

Mynd: Getty Images

Það verður ómögulegt fyrir Manchester City að finna beinan arftaka Sergio Aguero sem kveður félagið í sumar.
Þetta segir Pep Guardiola, stjóri Man City, en Aguero verður samningslaus eftir tímabilið og ætlar að færa sig um set.

Aguero lék með Man City í heil tíu ár og er markahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Hans verður sárt saknað á Etihad og veit Guardiola að það mun enginn leikmaður gera það sama fyrir félagið og Argentínumaðurinn hefur gert.

„Það eru enn tveir mánuðir í þetta og á æfingasvæðinu í dag þá sá ég hversu frábær hann var og ákveðinn," sagði Guardiola.

„Það er ekki hægt að taka við af Aguero. Þegar kemur að tölunum er hægt að leysa hann af hólmi en það er ekki auðvelt þegar þú sérð meira en 360 leiki og yfir 250 mörk og svo titlana."

„Þetta er goðsögn og besti framherjinn sem félagið hefur átt á þessum áratug."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.