Fotbolti.net
17.09.26 - 15:25
Elvar Geir Magnússon

Baldur Hannes: Erum þá bestir í þessari deild

Auglýsing
Baldur Hannes Stefánsson.

Baldur Hannes Stefánsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Úrslitaleikur umspils Lengjudeildarinnar verður á laugardag. Þróttur mætir Fylki um laust sæti í Bestu deild karla 2027. Leikurinn verður spilaður kl 16:15 á iðagrænum Laugardalsvelli.

Baldur Hannes Stefánsson, fyrirliði Þróttar, ræddi við Fótbolta.net, á fréttamannafundi í dag.
„Mér finnst vikan hafa einkennst af yfirvegun. Það er mikið sjálfstraust í liðinu að við séum að fara að klára þetta. Þegar við erum upp á okkar besta erum við besta liðið í þessari deild," segir Baldur.

„Ég er spenntur að spila á þessum velli. Við komum hérna í gær og hann lítur hrikalega vel út. Algjört teppi."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.