Manchester City og Liverpool mætast í stórleik helgarinnar en leikurinn hefst eftir um það bil hálftíma.
City er í titilbaráttu við Arsenal en Manchester liðið er átta stigum á eftir Lundúnarliðinu en á leik til góða.
Guardiola hrósaði leikmannahópnum og sendi stuðningsmönnum skilaboð í aðdraganda leiksins í dag.
„Ég sé löngunina í augunum á leikmönnunum. Þeir eru svo miklir atvinnumenn, það er draumur að stýra þeim og ég er svo stoltur af þeim öllum," sagði Guardiola.
„Við þurfum á ykkur (stuðningsmönnunum) að halda á síðustu vikum tímabilsins. Háfaðinn, orkan og ástríðan hjá ykkur skiptir okkur svo miklu máli."
Athugasemdir