Arnar Gunnlaugsson, aðstoðarþjálfari KR, segir að markmiðið sé skýrt í Vesturbæ í sumar. KR hefur leik í Pepsi-deildinni gegn Víkingi R. klukkan 19:15 í kvöld.
„Klubbur eins og KR er að stefna á titil. Við förum ekki í grafgötur með það," sagði Arnar í viðtali við Fóbolta.net.
„Ef ég segi að ég stefnum á titil þá verð ég að segja að við verðum Íslandsmeistarar í haust. Annað væri bara hræsni. Þetta verður mjög erfitt, það er fullt af öðrum góðum liðum, en við stefnum á að vinna titilinn. Það er ekkert annað í boði í Vesturbænum."
KR-ingar komu heim úr æfingaferð á þriðjudaginn og byrjuðu að æfa á grasi í Vesturbænum á föstudaginn. Þeir hafa því góða reynslu af grasinu undanfarnar vikur.
„Þessir maí leikir eru þannig að það getur brugðið til beggja vona. Það eru mikil læti og barátta. Þetta snýst um að safna stigum og skjóta sig ekki í fótinn og klúðra mótinu í maí. Liðin líta vel út og þetta verður skemmtilegt mót," sagði Arnar.
Danski framherjinn Tobias Thomsen hefur raðað inn mörkum síðan hann kom til KR á dögunum.
„Holningin á honum er mjög flott. Það er skemmtilegur senters hroki í honum. Það er tvennt ólíkt að skora í æfingaleikjum og á Íslandsmóti. Það er hans að sanna það að hann geti deliverað í sumar og okkar að styðja við hann. Það eru miklar væntingar til hans."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
mánudagur 1. maí
17:00 Breiðablik-KA (Kópavogsvöllur)
19:15 KR-Víkingur R. (Alvogenvöllurinn)
19:15 Grindavík-Stjarnan (Grindavíkurvöllur)
Athugasemdir