„Mjög ánægður, við gerðum þetta mjög vel," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir 5-0 sigur á Dalvík/Reyni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í dag.
Lestu um leikinn: KR 5 - 0 Dalvík/Reynir
„Við vorum einbeittir og mínir menn gerðu bara hlutina eins og við báðum þá um fyrir leikinn. Ekki gefa nein færi á sér og ekkert kæruleysi, reyna að vera eins og atvinnumenn í þessu, spila okkar leik og bera virðingu fyrir andstæðingnum."
Aron Bjarki Jósepsson, varnarmaður KR, skoraði tvennu í leiknum en fékk höfuðhögg undir lokin.
„Það blæddi mikið úr nösunum á honum núna. Hann er í leikbanni í næsta leik þannig það eru ennþá 10 dagar í að hann megi eða geti spilað hvort sem er þannig að kannski var besta tímasetningin til að fá eitthvað höfuðhögg núna, langt í næsta leik."
Ætla KR-ingar að bæta einhverju við leikmannahóp sinn áður en glugginn lokar?
„Ekkert sem við erum að spá í, við erum löngu búnir að loka okkar leikmannamálum og erum mjög ánægðir með hópinn okkar og höfum ekki á hyggju að bæta við fleiri leikmönnum."
Viðtalið er í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























