banner
   lau 01. maí 2021 16:07
Egill Sigfússon
Byrjunarlið HK og KA: Valgeir á bekknum hjá HK
Valgeir er mættur aftur í HK eftir dvöl hjá Brentford
Valgeir er mættur aftur í HK eftir dvöl hjá Brentford
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK tekur á móti KA í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla í Kórnum klukkan 17:00.

Byrjunarliðin eru komin og hjá HK byrjar Arnar Freyr í markinu, Birkir, Guðmundur, Rauschenberg og Ívar í vörninni, Arnþór, Ásgeir Börkur og Atli á miðjunni, fremstu þrír eru svo Bjarni, Stefán og Birnir.

KA byrjar með Steinþór Már Auðunsson eða Stubb, eins og hann er kallaður, í markinu þar sem Kristijan Jajalo er úlnliðsbrotinn. Í vörninni eru Hrannar, Hendrickx, Brynjar og Dusan. Á miðjunni eru Rodri, Andri og Daníel og fremstu þrír eru Hallgrímur Mar, Ásgeir og Nökkvi.

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
5. Guðmundur Þór Júlíusson (f)
6. Birkir Valur Jónsson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
9. Bjarni Gunnarsson
18. Atli Arnarson
21. Ívar Örn Jónsson
28. Martin Rauschenberg
30. Stefan Alexander Ljubicic

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
7. Daníel Hafsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
26. Jonathan Hendrickx

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.
Athugasemdir
banner
banner
banner