Byrjunarlið í sögulegum bikarleik: Taylor í markinu og Álfhildur kemur inn

Fyrirliðinn Álfhildur Rósa er klár í slaginn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrirliðinn Álfhildur Rósa er klár í slaginn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú fer að styttast í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna en Grindavík/Njarðvík og Þróttur eigast við á Laugardalsvelli núna klukkan 16:00.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, gerir þrjár breytingar frá 4-1 tapinu gegn Val í síðasta deildarleik.
Taylor Fox tekur stöðu Stephanie Bukovec í markinu og þá koma Birta Birgisdóttir og Júlía Ruth Thasaphong inn í liðið. Santa Sanija Vuskane og Hayden Colson fara á bekkinn.
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, gerir þá tvær breytingar frá 1-1 jafnteflinu gegn Breiðabliki. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði liðsins, og Björg Gunnlaugsdóttir koma inn fyrir Bríeti Fjólu Bjarnadóttur og Þórdísi Nönnu Ágústsdóttur.
Byrjunarlið Grindavík/Njarðvík
- 14. Taylor Fox (m)
- 2. Ellie Coffield
- 5. Natasha Moraa Anasi
- 6. Birta Birgisdóttir
- 12. Hannah McLaughlin
- 17. Sophia Faith Romine
- 18. Ása Björg Einarsdóttir
- 19. Elísa Birta Káradóttir
- 22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
- 26. Júlía Ruth Thasaphong
- 28. Emma Nicole Phillips
Byrjunarlið Þróttur R.
- 1. Mollee Swift (m)
- 3. Mist Funadóttir
- 5. Jelena Tinna Kujundzic
- 8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
- 10. Katherine Amanda Cousins
- 11. Björg Gunnlaugsdóttir
- 14. Sierra Marie Lelii
- 16. María Eva Eyjólfsdóttir
- 21. Kayla Marie Rollins
- 23. Sæunn Björnsdóttir
- 27. Unnur Dóra Bergsdóttir
