12.09.26 - 15:06
Brynjar Ingi Erluson
De Zerbi um Richarlison: Ég veit sannleikann

Richarlison

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Richarlison

Mynd: EPA
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, tjáði sig um mál Richarlison í gær og segist vita nákvæmlega hvað gekk á og hvernig leikmaðurinn hafi hagað sér síðustu 45 daga.
Richarlison var markahæsti leikmaður Tottenham á síðustu leiktíð með ellefu mörk en reyndi að komast frá félaginu í sumarglugganum.
Hann var ekki skráður í úrvalsdeildarhópinn og hefur verið látinn æfa með U21 árs liðinu. Brassinn er jafnvel sagður hafa íhugað að fara í hart við félagið til að fá samningi sínum rift.
Undir lok gluggans var greint frá því að Everton og Tottenham hefðu náð samkomulagi um félagaskiptin en Richarlison ekki náð samningum um kaup og kjör. Hann reyndi einnig að komast til Vasco da Gama í heimalandinu og skellir skuldinni á Tottenham fyrir að ekkert varð af því. Félagið ætlaði að lána hann en hafði þegar fullnýtt heimild sína til að lána leikmenn til erlendra félaga.
De Zerbi gefur lítið fyrir málflutning Richarlison og segist vita nákvæmlega hvað gekk á, þótt hann vilji ekki fara út í smáatriðin.
„Ég hefði séð eftir því ef það hefði verið mín ákvörðun að hafa hann ekki í úrvalsdeildarhópnum en það var ekki einu sinni félagið sem tók hana. Eins og ég hef þegar sagt ykkur tók hann þessa ákvörðun sjálfur og þetta eru afleiðingarnar.“
„Mér þykir þetta leitt því ég hef einum leikmanni færra úr að velja. Richarlison er mjög góður náungi og ég talaði oft við hann og eyddi tíma í að reyna að sannfæra hann um að vera áfram, en ég veit sannleikann og hvað gerðist í síðasta mánuði og undanfarna 45 daga. Það liggur alveg ljóst fyrir en ég læt það ekki pirra mig.“
„Ég veit hvað félagið gerði þessa 45 daga og hvernig Richarlison hagaði sér. Ég get ekki útskýrt það núna því það væri ekki rétt en mér þykir þetta leitt, enda hefði þetta getað farið öðruvísi. Ég hefði viljað að málin fengju annan endi, það hefði verið betra.“
„Það hefði verið miklu betra að Richarlison væri í hópnum, ánægður með að vera áfram og jafnvel að framlengja samninginn, því hann er enn mikilvægur leikmaður. Hann var mikilvægur á síðustu leiktíð og við megum ekki gleyma því, en við megum heldur ekki gleyma síðustu 45 dögum,“ sagði De Zerbi.