12.09.26 - 14:44
Brynjar Ingi Erluson
„Það er verið að líkja mér við morðingja“

Þetta er ein af mörgum myndum sem hefur verið dreift af Mbappe

Mynd: Af netinu

Kylian Mbappe, leikmaður Real Madrid og franska landsliðsins, sér bæði spaugilegar og alvarlegar hliðar á því að vera kallaður einræðisherrann.

TENGT EFNI
Mbappe: Enginn átti betra tímabil en ég
Það hefur lengi verið hálfgerður farandbrandari að kalla Mbappe einræðisherra vegna þeirra valda sem hann er sagður hafa hjá félögum sínum. Hjá Paris Saint-Germain var því meðal annars haldið fram að hann hefði mikil áhrif á leikmannakaup, þjálfaraval og aðrar ákvarðanir.
Þessi stimpill hefur loðað við hann og þegar L'Equipe spurði út í grínið sagðist hann sjá fyndnu hliðina, þótt samanburðurinn ætti sér líka alvarlegri hlið.
„Að vissu leyti er þetta fyndið því maður sér að hjá sumum er þetta bara saklaust grín, en önnur hlið á þessu er síður fyndin þegar við hugsum um þann skaða sem einræðisherrar hafa valdið fólki í gegnum söguna.“
„Það er verið að líkja mér við morðingja eða fólk sem hefur gert milljónum manna lífið leitt og ég hef aldrei gert neitt slíkt á ævinni.“
„Mér finnst þetta stundum sýna skort á pólitískri og mannlegri meðvitund hjá fólki,“ sagði Mbappe.