12.09.26 - 15:17
Brynjar Ingi Erluson
Dagur gæti verið á leið til Slóvakíu - Skýrist eftir leikinn á morgun

Dagur Orri Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Dagur Orri Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Slóvakíska félagið MSK Zilina hefur mikinn áhuga á Degi Orra Garðarssyni, leikmanni Vals.

TENGT EFNI
Hjörvar: Dagur er mjög ósáttur og ég sé hann ekki halda áfram hjá Val
Dagur Orri er sagður mjög ósáttur hjá Val eftir að félagið hafnaði 30 milljóna króna tilboði danska B-deildarliðsins Fredericia í hann undir lok félagaskiptagluggans.
Hann vill komast frá félaginu og gæti enn fært sig um set þar sem glugginn er opinn í nokkrum löndum. Hjörvar Hafliðason sagði í DocZone að Dagur væri þegar genginn til liðs við Zilina í Slóvakíu.
„Dagur Orri Garðarsson, leikmaður Vals, er genginn til liðs við Zilina í Slóvakía. Hann auðvitað missti af danska liðinu Fredericia í lok gluggans, en Slóvakarnar eru með þetta opið aðeins lengur og þeir keyptu hann held í gær alveg örugglega og fer á held ég ágætis pening fyrir Valsmenn,“ sagði Hjörvar í DocZone.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Zilina hins vegar ekki búið að ganga frá kaupunum en hefur mikinn áhuga á Degi og ætlar að fylgjast með honum gegn Þór á morgun. Félagaskiptaglugginn í Slóvakíu lokar annað kvöld og mun félagið taka ákvörðun eftir leikinn.
Dagur hefur skorað fjögur mörk í þrettán leikjum með Val í sumar og er samningsbundinn félaginu til 2030. Valsmenn eru sjö stigum fyrir ofan fallsæti í Bestu deildinni og var það ein ástæða þess að þeir vildu ekki selja hann til Fredericia.