Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 21:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea hafnar mörgum tilboðum
Mynd: EPA
Chelsea hefur hafnað mörgum tilboðum í varnarmanninn Josh Acheampong.

Þessi tvítugi Englendingur er uppalinn hjá Chelsea og félagið vill alls ekki selja hann. Hann kom aðeins við sögu í 17 leikjum í úrvalsdeildinni, þar af níu sem varamaður.

Það er óljóst hvort hann vilji sjálfur yfirgefa félagið en samningurinn hans rennur út árið 2029.

Arsenal, Newcastle og Crystal Palace hafa fylgst með gangi mála og Bournemouth sýndi honum áhuga síðasta sumar.
Slapp
banner
banner