Segir Tottenham hafa opnað viðræður við Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalski blaðamaðurinn Nicolo Schira segir Tottenham hafa opnað viðræður við Liverpool um hollenska sóknarmanninn Cody Gakpo.
Gakpo, sem er 27 ára gamall, er sagður opinn fyrir því að fara frá Liverpool eftir að Arne Slot var rekinn frá félaginu.
Hann var í miklu uppáhaldi hjá Slot, en mun líklega ekki fá jafn stórt hlutverk undir Andoni Iraola og virðast hreyfingar Liverpool á markaðnum nokkurn veginn staðfesta það.
Liverpool er komið með spænska landsliðsmanninn Victor Munoz frá Osasuna og þá er ungstirnið Rio Ngumoha þar fyrir.
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, vill ólmur fá Gakpo til félagsins og sér hann fyrir sér sem lykilmann í verkefninu.
Schira segir að Tottenham er að undirbúa stórt tilboð í Gakpo og þá hefur félagið þegar talað við umboðsmenn hans um að gefa honum fimm ára samning.
Samkvæmt enskum miðlum er Gakpo verðmetinn á 60-70 milljónir punda.