Leggja fram tilboð í eftirsóttan leikmann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Leeds United hefur lagt fram 20 milljóna punda tilboð í Shea Charles, leikmann Southampton í ensku B-deildinni.
Charles er 22 ára gamall miðjumaður sem mörg úrvalsdeildarfélög hafa fylgst grannt með.
Southampton mistókst að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina í vor eftir að félaginu var refsað vegna njósnamálsins fyrir umspilið. Félagið var þá uppvíst að því að hafa njósnað um æfingar Middlesbrough, andstæðinga sinna í undanúrslitum umspilsins.
Athletic segir að Leeds ætli að reyna að fá Charles frá Southampton en hann hefur spilað lykilhlutverk með liðinu. Leeds hefur lagt fram tilboð upp á 20 milljónir punda.
Tilboðinu hefur ekki verið hafnað og félögin eru áfram í viðræðum.
Charles skoraði sex mörk og gaf tvær stoðsendingar í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð. Þar að auki er hann fastamaður í landsliði Norður-Írlands og á 35 A-landsleiki að baki.