Fotbolti.net
22.06.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Líklega síðasta heimsmeistaramót Courtois - „Vil ljúka ferlinum hjá Real Madrid“

Líklega síðasta heimsmeistaramót Courtois - „Vil ljúka ferlinum hjá Real Madrid“
Canon

Mynd: EPA

Thibaut Courtois, einn besti markvörður heims síðasta áratuginn, segir þetta líklega vera sitt síðasta heimsmeistaramót. Þetta sagði hann eftir markalaust jafntefli Belga gegn Íran í gær.
Courtois, sem er 34 ára gamall, þreytti frumraun sína með belgíska landsliðinu árið 2011 og er nú að leika á sínu fjórða heimsmeistaramóti.

Hann komst í 8-liða úrslit á HM í Brasilíu árið 2014 og í undanúrslit fjórum árum síðar í Rússlandi, þar sem hann var valinn besti markvörður mótsins. Á HM í Katar fyrir fjórum árum féllu Belgar úr leik í riðlakeppninni en Courtois er nú á sínu fjórða og líklega síðasta heimsmeistaramóti.

„Þetta gæti verið mitt síðasta heimsmeistaramót,“ sagði Courtois eftir jafnteflið gegn Íran í gær.

Belgía er með tvö stig eftir tvo leiki og þarf hagstæð úrslit gegn Nýja-Sjálandi í lokaumferðinni til að komast áfram.

Courtois, sem hefur verið aðalmarkvörður Real Madrid síðustu ár, segir það vera markmið sitt að ljúka ferlinum hjá félaginu.

„Ég vil spila í fjögur eða fimm ár til viðbótar hjá Real Madrid. Ég vil ljúka ferlinum hér,“ sagði Courtois.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.