Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 17:02
Elvar Geir Magnússon
Gerði íranska ráðamenn reiða og fer ekki með á HM
Sardar Azmoun fer ekki á HM.
Sardar Azmoun fer ekki á HM.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Íranski landsliðshópurinn fyrir HM var opinberaður í dag en þar vekur mesta athygli að sóknarmaðurinn Sardar Azmoun, sem spilar fyrir Shabab Al-Ahli í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, er ekki valinn.

Azmoun hefur skorað 57 mörk í 91 leik fyrir þjóð sína en hann móðgaði íranska ráðamenn með því að birta mynd af sér með Mohammed bin Rashid Al Maktoum, forsætisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna.

Íranir hafa ráðist á innviði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í þeim átökum sem ríkja í Mið-Austurlöndum.

Íranska liðið mun dvelja í Mexíkó meðan HM stendur en Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segir að Bandaríkin hafi ekki viljað hýsa hópinn.

Íran á að mæta Nýja-Sjálandi þann 15. júní og Belgíu þann 21. júní, báðir leikir eiga að vera í Los Angeles, og mæta svo Egyptalandi í Seattle 26. júní.

Íranski HM hópurinn (leikmenn spila í heimalandinu nema annað sé tekið fram):

Markverðir: Alireza Beiranvand, Payam Niazmand, Hossein Hosseini

Varnarmenn: Ehsan Hajsafi, Milad Mohammadi, Ali Nemati, Shojae Khalilzadeh, Hossein Kanaanizadegan, Danial Eiri, Ramin Rezaeian, Saleh Hardani

Miðjumenn: Saman Ghoddos (Kalba, UAE), Saeid Ezatolahi (Shahab al-Ahli, UAE), Mohammad Ghorbani (Al-Wahda, UAE), Rouzbeh Cheshmi, Amirmohammad Razzaghinia, Mohammad Mohebi (Rostov, Rus), Mehdi Torabi, Mehdi Ghayedi (Al-Nasr, UAE), Alireza Jahanbakhsh, Aria Yousefi

Sóknarmenn: Mehdi Taremi (Olympiakos, Gre), Amirhossein Hosseinzadeh, Ali Alipour, Shahriyar Moghanlou (Kalba, UAE), Dennis Eckert (Dennis Dargahi, Standard Liege, Bel)

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner