Þróttur vann öflugan sigur á Grindavík í kvöld þegar 7. umferð Lengjudeildarinnar leið undir lok.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 0 Grindavík
„Hörku leikur, það eru öll lið í þessari deild góð þannig þetta eru allt hörku leikir" sagði Kári Kristjánsson miðjumaður Þróttara eftir sigurinn í kvöld.
„Við þurfum bara að koma með alvöru hugarfar inn í þetta. Það er búið að ganga illa í síðustu leikjum. Við erum búnir að fara í grunnvinnuna og mér fannst það virka bara helvíti vel í dag"
Þróttur hafði fengið eitt stig úr síðustu þrem umferðum sínum í deildinni og var því virkilega sterkt að sækja sigur í kvöld.
„Það er bara miög mikilvægt. Þetta er jöfn deild og allir leikir eru bara helvíti jafnir og hver sigur er bara mjög dýrmætur þannig þetta var bara mjög stórt"
Kári Kristjánsson er mættur heim aftur í Þrótt en hann byrjaði tímabilið með FH áður en hann mætti aftur fyrir gluggalok heim í Þrótt, heima er best.
„Jú eins og staðan er núna. Mér líður bara ógeðslega vel hérna og við erum að spila skemmtilegan fótbolta og góðan. Við erum með hörku lið þannig þetta verður geggjað sumar" sagði Kári Kristjánsson.
Nánar er rætt við Kára Kristjánsson í spilaranum hér fyrir ofan.
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Afturelding | 7 | 5 | 1 | 1 | 22 - 13 | +9 | 16 |
| 2. Fylkir | 7 | 5 | 0 | 2 | 12 - 8 | +4 | 15 |
| 3. Þróttur R. | 7 | 4 | 1 | 2 | 16 - 9 | +7 | 13 |
| 4. HK | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 13 | +1 | 12 |
| 5. Grótta | 7 | 4 | 0 | 3 | 14 - 15 | -1 | 12 |
| 6. Vestri | 7 | 3 | 1 | 3 | 11 - 15 | -4 | 10 |
| 7. Leiknir R. | 7 | 2 | 3 | 2 | 8 - 10 | -2 | 9 |
| 8. Njarðvík | 7 | 2 | 2 | 3 | 6 - 6 | 0 | 8 |
| 9. ÍR | 7 | 2 | 1 | 4 | 15 - 17 | -2 | 7 |
| 10. Ægir | 7 | 2 | 1 | 4 | 9 - 11 | -2 | 7 |
| 11. Grindavík | 7 | 1 | 4 | 2 | 7 - 9 | -2 | 7 |
| 12. Völsungur | 7 | 0 | 2 | 5 | 4 - 12 | -8 | 2 |
























