Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 16:45
Elvar Geir Magnússon
Nokkrir úr ensku úrvalsdeildinni fara með Ekvador á HM
Nilson Angulo, leikmaður Sunderland.
Nilson Angulo, leikmaður Sunderland.
Mynd: EPA
Nilson Angulo, hinn 22 ára sóknarmaður Sunderland, er meðal leikmanna sem valdir voru i 26 manna hóp ekvadorska landsliðsins fyrir HM. Hann á tólf landsleiki en tekur þátt í HM í fyrsta sinn.

Moises Caicedo miðjumaður Chelsea og Piero Hincapie varnarmaður Arsenal eru einnig í ekvadorska hópnum en þeir eru á leið á sitt annað HM.

Hinn 36 ára gamli Enner Valencia er fyrirliði Ekvador en hann er markahæstur í sögu þjóðarinnar, með 49 mörk í 105 landsleikjum.

Ekvador er með Þýskalandi, Fílabeinsströndinni og Curacao í riðli á HM í sumar.


Markverðir: Hernan Galindez (Huracan), Moises Ramirez (Kifisia), Gonzalo Valle (LDU Quito).

Varnarmenn: Piero Hincapie (Arsenal), Willian Pacho (Paris St-Germain), Pervis Estupinan (AC Milan), Felix Torres (Internacional), Joel Ordonez (Club Brugge), Jackson Porozo (Tijuana), Angelo Preciado (Atletico Mineiro).

Miðjumenn: Moises Caicedo (Chelsea), Alan Franco (Atletico Mineiro), Kendry Paez (River Plate, á láni frá Chelsea), Pedro Vite (UNAM), Jordy Alcivar (Independiente del Valle), Denil Castillo (Midtjylland), Yaimar Medina (Genk).

Sóknarmenn: Enner Valencia (Pachuca), Kevin Rodriguez (Union Saint-Gilloise), Jordy Caicedo (Huracan), Nilson Angulo (Sunderland), Anthony Valencia (Antwerp), Jeremy Arevalo (Stuttgart).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner