Fotbolti.net
01.07.26 - 23:29
Ívan Guðjón Baldursson

4. deild: Álftanes með fullt hús eftir níu umferðir

4. deild: Álftanes með fullt hús eftir níu umferðir
Canon

Mynd: Aðsend

Elliði 2 - 5 Álftanes
0-1 Bessi Thor Jónsson ('2 )
1-1 Pétur Óskarsson ('6 )
1-2 Tomas Alejandro Barletta ('48 )
2-2 Pétur Óskarsson ('63 )
2-3 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('71 )
2-4 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('87 )
2-5 Arian Ari Morina ('90 )
Elliði tók á móti Álftanesi í eina leik dagasins í 4. deildinni og náðu gestirnir forystunni í tvígang.

Í bæði skiptin tókst heimamönnum að jafna en þeir áttu engin svör þegar Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson setti tvennu í seinni hluta síðari hálfleiks.

Arian Ari Morina innsiglaði sigurinn í uppbótartíma svo lokatölur urðu 2-5 fyrir Álftanes sem er með fullt hús stiga eftir 9 umferðir. Elliði situr eftir með 10 stig.
4. deild: Álftanes með fullt hús eftir níu umferðir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.