5. deild: Skellur fyrir Stokkseyringa - Arilíus sá rautt

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
RB 5 - 3 Stokkseyri
1-0 Leonardo Norbert Mitruscsak ('3, víti)
2-0 Ágúst Þór Ægisson ('30 )
2-1 Jón Jökull Þráinsson ('44 )
3-1 Leonardo Norbert Mitruscsak ('45 )
4-1 Leonardo Norbert Mitruscsak ('53 )
5-1 Mustafa Troncoso Espinar ('63 )
5-2 Karl Jóhann Einarsson ('68 )
5-3 Karl Jóhann Einarsson ('75 )
Rautt spjald: Arilíus Marteinsson, Stokkseyri ('77)
Rautt spjald: Mustafa Troncoso Espinar, RB ('92)

RB og Stokkseyri áttust við í eina leik kvöldsins í 5. deildinni og úr varð mikil markaveisla.
Heimamenn náðu forystunni snemma leiks í Reykjanesbæ þegar Leonardo Norbert Mitruscsak skoraði úr vítaspyrnu og átti hann eftir að skora annað mark skömmu fyrir leikhlé svo staðan var 3-1 fyrir heimamenn í hálfleik.
Leonardo fullkomnaði þrennu í upphafi síðari hálfleiks áður en Mustafa Troncoso Espinar setti fimmta mark heimamanna svo staðan var orðin 5-1 eftir rúma klukkustund.
Stokkseyringar gáfust ekki upp og minnkuðu muninn með tvennu frá Karli Jóhanni Einarssyni en hún dugði ekki til. Staðan var 5-3 og fékk Arilíus Marteinsson, suðurlandsins eina von, að líta sjaldgæft rautt spjald á 77. mínútu.
Tíu Stokkseyringum tókst ekki að minnka muninn frekar svo afar svekkjandi tap er niðurstaðan.
Stokkseyri er í öðru sæti eftir tapið, með 16 stig eftir 8 umferðir. Liðið er tveimur stigum á eftir toppliði Hamranna sem á leik til góða. RB er með 10 stig.