HM: Mögnuð endurkoma í skemmtilegum leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Belgía 3 - 2 Senegal
0-1 Habib Diarra ('25 )
0-2 Ismaila Sarr ('51 )
1-2 Romelu Lukaku ('86 )
2-2 Youri Tielemans ('89 )
3-2 Youri Tielemans ('125, víti)
0-1 Habib Diarra ('25 )
0-2 Ismaila Sarr ('51 )
1-2 Romelu Lukaku ('86 )
2-2 Youri Tielemans ('89 )
3-2 Youri Tielemans ('125, víti)
Mögnuðum fótboltaleik var að ljúka í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins þar sem Belgía hafði betur eftir að hafa lent tveimur mörkum undir gegn Senegal.
Senegalar voru sterkara liðið stærsta hluta leiksins og leiddu með tveggja marka mun eftir mörk frá Habib Diarra í fyrri hálfleik og Ismaïla Sarr í upphafi þess síðari.
Senegalar voru óheppnir að komast ekki í þriggja marka forystu og svöruðu Belgarnir á lokakaflanum. Romelu Lukaku, sem kom inn af bekknum í hálfleik, minnkaði muninn á 86. mínútu áður en Youri Tielemans skallaði fyrirgjöf frá Leandro Trossard í netið skömmu síðar til að knýja leikinn í framlengingu.
Framlengingin var nokkuð tíðindalítil og jöfn allt þar til undir lokin þegar Belgar fengu dæmda vítaspyrnu eftir klaufalegt brot hjá Lamine Camara innan teigs. Youri Tielemans steig á punktinn og skoraði örugglega til að gera sigurmark Belgíu.
Senegalar leituðu að jöfnunarmarki seint í uppbótartíma framlengingarinnar en tókst ekki að skora. Lokatölur urðu því 3-2 og mun Belgía annað hvort spila við Bosníu eða Bandaríkin í 16-liða úrslitum.

TENGT EFNI
Framlengt hjá Belgíu og Senegal

Mynd: EPA

Mynd: EPA