Fotbolti.net
01.07.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Koke tekur annað ár í Madríd

Koke tekur annað ár í Madríd
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn þaulreyndi Koke er búinn að skrifa undir eins árs samning við Atlético Madrid.
Hann er 34 ára gamall og hefur spilað 740 keppnisleiki fyrir Atlético sem er uppeldisfélagið hans.

Koke hefur alla tíð leikið fyrir Atlético og spilaði 70 landsleiki fyrir Spán á ferlinum. Hann hefur haldið tryggð við félagið þrátt fyrir áhuga í gegnum tíðina frá stórveldum víða um Evrópu jafnt sem utan álfunnar.

„Vonandi verður þetta ekki bara eitt ár í viðbót, heldur mörg ár. Þetta er félagið mitt. Markmiðið er að vinna titil. Það eru liðin ár síðan við unnum síðast, við viljum komast þangað aftur," sagði Koke sem hefur unnið spænsku deildina tvisvar og Evrópudeildina tvisvar sem leikmaður Atlético, auk þess að tapa tvisvar sinnum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar - bæði skiptin gegn nágrönnunum í Real Madrid.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.